„Ég fer ekki aftur í Söngvakeppnina“ Stefán Árni Pálsson skrifar 25. mars 2020 16:46 Daði ætlar ekki að taka þátt í Söngvakeppninni aftur. Hann getur aftur á móti hugsað sér að semja lag. „Fyrir mig persónulega er þetta ekkert rosalega svekkjandi þannig séð en mér finnst leiðinlegt að hafa misst af tækifærinu að prófa þetta og taka þátt í þessu brjálæði sem Eurovision er,“ segir Daði Freyr í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Í síðustu viku var tilkynnt að lög sem höfðu verið valin til þátttöku í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár verða ekki gjaldgeng þegar keppnin verður að haldin að ári liðnu. Fáir misstu af því þegar tilkynnt var að ekkert verði af Eurovision í ár, sem átti að fara fram í Rotterdam í maí. Framlagi Íslands, laginu Think About Things í flutningi Daða Freys Péturssonar og Gagnamagnsins, hafði verið spáð góðu gengi í keppninni og var jafnan í efstu sætum hjá veðbönkum. „Fyrir minn ferill hefur þetta verið rosalega mikill stökkpallur og því get ég ekki kvartað mikið. Nú er ég kominn með bókara og er að tala við útgáfufyrirtæki og það eru öll plötufyrirtækin að reyna ná í mig,“ segir Daði sem var því næst spurður hvort hann væri til í að taka aftur þátt í Söngvakeppninni. „Nei, ég mun ekki taka þátt í Söngvakeppninni. Við erum búin að vinna þessa keppni einu sinni og ef ég myndi fara aftur þá myndi manni finnast eins og fólk ætti bara að kjósa mann út af því að við vorum búin að vinna einu sinni og fórum ekki í keppnina. Það myndi síðan ekki koma vel út fyrir mig að taka aftur þátt og vinna ekki keppnina.“ Vangaveltur hafa verið í samfélaginu um það hvort rétt væri að leyfa Daða Frey að semja lag eða lög fyrir keppnina á næsta ári. Mögulega gæti þjóðin kosið á milli slíkra laga sem myndi þýða breytt fyrirkomulag hjá Ríkissjónvarpinu með Söngvakeppnina. „Ég er mögulega til í að semja lag en ég fer ekki aftur í Söngvakeppnina,“ segir Daði Freyr. Eurovision Tónlist Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Gylfi og Alexandra eiga von á barni Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Bernard Hill er látinn Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Fleiri fréttir Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Sjá meira
„Fyrir mig persónulega er þetta ekkert rosalega svekkjandi þannig séð en mér finnst leiðinlegt að hafa misst af tækifærinu að prófa þetta og taka þátt í þessu brjálæði sem Eurovision er,“ segir Daði Freyr í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Í síðustu viku var tilkynnt að lög sem höfðu verið valin til þátttöku í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár verða ekki gjaldgeng þegar keppnin verður að haldin að ári liðnu. Fáir misstu af því þegar tilkynnt var að ekkert verði af Eurovision í ár, sem átti að fara fram í Rotterdam í maí. Framlagi Íslands, laginu Think About Things í flutningi Daða Freys Péturssonar og Gagnamagnsins, hafði verið spáð góðu gengi í keppninni og var jafnan í efstu sætum hjá veðbönkum. „Fyrir minn ferill hefur þetta verið rosalega mikill stökkpallur og því get ég ekki kvartað mikið. Nú er ég kominn með bókara og er að tala við útgáfufyrirtæki og það eru öll plötufyrirtækin að reyna ná í mig,“ segir Daði sem var því næst spurður hvort hann væri til í að taka aftur þátt í Söngvakeppninni. „Nei, ég mun ekki taka þátt í Söngvakeppninni. Við erum búin að vinna þessa keppni einu sinni og ef ég myndi fara aftur þá myndi manni finnast eins og fólk ætti bara að kjósa mann út af því að við vorum búin að vinna einu sinni og fórum ekki í keppnina. Það myndi síðan ekki koma vel út fyrir mig að taka aftur þátt og vinna ekki keppnina.“ Vangaveltur hafa verið í samfélaginu um það hvort rétt væri að leyfa Daða Frey að semja lag eða lög fyrir keppnina á næsta ári. Mögulega gæti þjóðin kosið á milli slíkra laga sem myndi þýða breytt fyrirkomulag hjá Ríkissjónvarpinu með Söngvakeppnina. „Ég er mögulega til í að semja lag en ég fer ekki aftur í Söngvakeppnina,“ segir Daði Freyr.
Eurovision Tónlist Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Gylfi og Alexandra eiga von á barni Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Bernard Hill er látinn Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Fleiri fréttir Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Sjá meira